Í tilefni af 60 ára afmæli sundlaugar Mühleye Visp í Wallis kantónu í Sviss, var ákveðið að bjóða upp á áskorunina Fjarkasundið sem fólst í því að synda vegalengd sem samsvarar hæð tuttugu útvaldra fjalla í nágrenni Visp sem eru öll yfir fjögurþúsund m y.s. (hér nefndir fjarkar). En þess má geta að í Wallis eru margir hæstu tindar Alpanna, eða 41 fjarki, þ.á.m. hið fræga Matterhorn.
Verkefnið hófst í byrjun tímabilsins að vori 2023 og í lok sumars voru um 60 þátttakendur sem höfðu skráð sig og 30 þeirra höfðu synt vegalengd sem samsvarar 20.000 hæðarmetrum. Verðlaunahafarnir voru dregnir út á síðasta sunddeginum og höfðu sigurvegarnir mikla ánægju af því að fá í verðlaun þyrluflug yfir hina glæsilegu Alpa sem þau höfðu nýlega lokið við að synda upp á.
Í upphafi tímabilsins fyrir árið 2024 hófst önnur umferð. Um leið fengu Alparisarnir félagsskap smærri og fjölbreyttra íslenskra fjalla og fella, sum hver eldvirk, önnur ísilögð og nokkur sögð heimkynni trölla og huldufóks. Vefsíðan var einnig þýdd yfir á íslensku og þarlenskum sundlaugum boðið að taka þátt.
Það er von okkar að sem flestar sundlaugar, bæði í Sviss og á Íslandi, sjái sér hag í því að bjóða sínu sundfólki upp á fjallasund. Þá gæti sundfólk á Íslandi æft bringusundstökin á hæstu tindum Alpanna og í Sviss væri hægt að troða marvaða upp á ísfylltum eldgígum sveipuðum íslenskri dulúð.
Það verður spennandi að sjá hvert þetta fjallasunds-ævintýri leiðir okkur.